Fyrsta "árgangsbarnið"
Stór strákur sem kom í heiminn 6. maí og er bráðmynarlegur eins og mamman sjálf :-) enda ekki við öðru að búast
Til hamingju Helga, enn og aftur!!! Vonandi hafiði það sem allra best... Nánar
útskriftarnemar.
Hverjir eru að taka stóra skrefið í vor og klára skólann?
Hér á Höfn eru það ég, Guðni Rúnar, Jóhann Bergur, Hörður og Ósk í árganginum sem eru að klára, loksins loksins!
Er kannski einhver ekki í skóla, eða í einhverskonar iðnnámi? segið okkur fréttir!
p.s. Helga okkar er alveg kominn á steypirinn! vika eftir.
-assa
Gettu Betur
-assa.
Fréttir

Það er svo komin ný undirsíða hérna til hliðar sem er merkt "Annar í jólum 2008" og ég setti þar inn link á síðu þar sem þið getið skoðað einhverjar myndir úr árgangspartýinu. Þið sem voruð með myndavélar, endilega bætið við myndum :-)
Væri gaman að fá fleiri fréttir af fólkinu þegar þið hafið þær, sama hversu litlar eða stórar fréttirnar eru
Bkv. Inga Birna
Árgangspartý
Halló halló
Senn fer að líða að jólum og enn veit ég ekki hvernig þetta verður með árgangspartý. Þar sem að ég bjóst ekki við að koma neitt austur yfir hátíðirnar lét allar árgangspartý-umræður fara framhjá mér.
Ég ákvað síðan að láta í mér heyra (eins og vanalega) þar sem að ég ákvað að kíkja á Höfn frétti að það væri búið að fresta annan í jólum ballinu.
Er það rétt hjá mér?
Þið vitið þetta betur en ég örugglega þið sem eruð á Höfn, en ég hef heyrt frá mörgum að það séu mjög margir frekar "lost" í þessum umræðum.
Einhver sem veit meira um þetta mál, endilega blogga hérna inn og upplýsa okkur hin um þetta, því að ég veit að það eru margir sem vita ekki hvernig þetta verður, og svo er málið með staðsetningu fyrir partý?
Jájájá.. eru ekki annars allir game í árgangspartý? ég hefðu nú haldið það :-)
Kv. Inga
ÁRGANGSPARTÝIÐ!!!!
http://www.facebook.com/wall.php?id=37947214045#/group.php?gid=37947214045
-Aron M
Afmælisbörn
Ég sá að það voru einhverjir að spyrja um password og notandanafn. Ég sendi á einhverja á msn, þannig að endilega látið það ganga á msn svo allir fái notandan. og passw. svo sem flestir geti dritað einhverju hérna inn
Ég held barasta að september sé met mánuður hjá þessum árgangi. Eik gamla átti afmæli 30. ágúst og svo eru það Jóhann Helgi, Ósk, Haukur, Olgeir og María sem eru búin að eiga afmæli núna í september og fleiri eftir.
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KRAKKAR!!
Ný önn byrjuð og fleiri komnir í bæinn. Spurning um að fara að gera eitthvað saman? Endilega koma með tillögur :-)
Og svo auðvitað breyta upplýsingum í "Um okkur" og afmælisdögum ef þess þarf


-Inga
Afmæli afmæli
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLISDAGINN GULLI!!
hafðu það gott á afmælisdaginn gamli!! :-)
(endilega skrifiði afmælisdagana ykkar í undirsíðuna hérna til hliðar svo allir geti fylgst með)
Staðan á hópnum?
Ég var að velta fyrir mér hverjir í okkar ágæta árgangi haf sett upp hvíta kollin og hvar verðið þið í sumar og hvað að vinna?
Í óspurðum fréttum ætla ég að segja ykkur að ég útskrifaðist 24. maí sem stúdent frá MH og er núna í útskriftarferð í Króatíu. Ég verð í Reykjavík í sumar að vinna við bókhald á fjármálasviði N1.
En endilega látið heyra í ykkur!! Hver er staðan á ykkur??
-Gunnlaugur Bragi
Þið sem eruð í Reykjavík!
Við vorum einhver búin að tala saman um að hittast einhverntíman og borða saman í rólegheitum, edrú.
Nú er spurningin með að gera eitthvað úr því ... ætli einhver sé til í Brunch á laugardaginn 1. mars? Café Oliver er t.d. með ágætan Brunch matseðil! Er einhver til í létt spjall og mat, t.d. klukkan 11 á laugardaginn? Eða eru allir voða busy að læra?!
vs. 
Látið í ykkur heyra!!!
